Þrír nýjir aðilar kosnir inn í Heiðursstúku ÍHÍ

Á íshokkíþingi sem haldið var í dag lagði formaðurinn Helgi Páll Þórisson fram tillögu um þrjá nýja aðila inn í Heiðursstúku ÍHÍ. Heiðursstúkan var sett af staði í fyrsta sinn á Íshokkíþingi 2023.  Þeir einstaklingar sem eru tilnefndir í Heiðursstúku ÍHÍ fá tilnefninguna fyrir árangur og störf sín fyrir íshokkí á Íslandi.  Margir hverjir hafa verið leikmenn, þjálfara, dómarar og stjórnarmenn í sínum félögum og verið virkir í störfum hjá ÍHÍ. 
Að þessu sinni voru tilnefndir eftirtaldir aðilar:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Snorri Gunnar Sigurðarsson
Jón Þór Eyþórsson

Íshokkíhreyfingin vill þakka þessum aðilum fyrir ómetanlegt framlag til íshokkíhreyfingarinnar.  Hlekkur á vef heiðursstúkunnar