Þriðji leikur í úrslitum í Hertz-deild karla

Ljósmyndari: Elvar Freyr Pálsson
Ljósmyndari: Elvar Freyr Pálsson

SA Víkingar og UMFK Esja áttust við í gærkvöldi í öðrum leik liðanna í úrslitum karla í Hertz-deild karla. Leikurinn átti sér stað í Skautahöllinni á Akureyri fyrir fullu húsi aðdáenda.

Esju­menn lögðu SA Víkinga 3:2 í leikn­um og geta klárað ein­vígið á laug­ar­dag með sigri og orðið Íslands­meist­ar­ar í fyrsta skipti.

Leikurinn í gær byrjaði með látum og staðan var strax orðin 1:1 eftir aðeins rúmar 3 mínútur.  Fyrir lok fyrsta leikhluta skoraði Esja með marki  Péturs Maack og Andri Már Mikaelsson náði að jafna fyrir SA í öðrum leikhluta. Í þriðja leikhluta hélst spennan áfram, Ólafur Hrafn Björnsson kom pekkinum í markið og staðan hélst 2-3 fyrir Esju til leiksloka og fóru Esjumenn sáttir frá Akureyri heim til Reykjavíkur.

Þriðji leikur úrslita mun verða í Skautahöllinni Laugardal, laugardaginn 25. mars og hefst leikurinn klukkan 17:00.  Við eigum von á stórskemmtilegum leik fyrir troðfullu húsi.