ÍHÍ ásamt Íþrótta- og Ólympíusambandinu stóð fyrir Þrautabraut 2015  en keppnin er forkeppni fyrir úrtökumót vegna Ólmpíuleika ungmenna sem fram fer í Lillihammer í Norgi árið 2016. Sigurvegarar í Þrautabrautinni munu halda til Vierumaki í sumar þar sem þeir taka þátt í úrtökumóti þar sem sextán þeir bestu halda áfram
 
 Þátttakendur voru þau:
Alexandra Hafsteinsdóttir SR
 Guðrún Linda Sigurðardóttir SR
 Ragnhildur Helga Kjartansdóttir SA
 Sunna Björgvinsdóttir SA
 
 Halldór Ingi Skúlason SA
 Heiðar Örn Kristveigarson SA
 Kristófer Ingi Birgisson Björninn
 Styrmir Maack SR
 Sölvi Atlason SR
 Vignir Freyr Arason Björninn
 
Þrautabrautin  samanstóð af sex þrautum sem reyna á allt það sem einn íshokkíleikmaður þarf að hafa en keppt var bæði í kvenna- og karlaflokki. Vignir Freyr Arason, Birninum og Sunna Björgvinsdóttir, Skautafélagi Akureyrar voru þeir keppendur sem stóðu sig best í sínum flokki og verða því fulltrúar Íslands að öllu óbreyttu. Keppni í þrautabraut er til viðbótar hefðbundinni keppni í íshokkíi, nánar má sjá um íshokkí á Ólympíuleikum ungmenna hér.
Mynd: Örvar Ólafsson
HH/ÖÓ