Þeir sem heima sitja

Þrátt fyrir að athyglin beinist nú mest að því sem er að gerast í Tyrklandi þá gleymast þeir sem heima sitja að sjálfsögðu ekki. Nú er verið að hleypa af stokkunum verkefni sem heitir "Þrautabraut ÍHÍ" og ætluð er iðkendum í 5. og 4. flokki. Neðst til vinstri á síðunni okkar má sjá tengil á þetta verkefni og einnig er þar undirtengill þar sem finna má myndir ásamt skýringar af þrautunum. Vonandi bætast við meiri fréttir og að sjálfsögðu niðurstöður úr verkefninu fljótlega.

Myndina tók Ómar Þór Edvardsson

HH