Þakkir

Eftir síðasta tímabil ákváðu þeir Helgi Valsson og Sigurjón Sigurðsson sem báðir hafar verið tækjastjórar í landsliðum okkar að taka sér frí frá störfum. Báðir hafa þeir sýnt þessu starfi fádæma alúð auk þess að eyða miklum tíma í að gera klárt fyrir þær landsliðsferðir sem þeir hafa farið í. Fyrir hönd stjórnar ÍHÍ og sjálfsagt leikmanna allra vil ég þakka þeim vel unnin störf á liðnum árum.

HH