Stjórn ÍHÍ tók fyrir erindi sem barst frá Sögu Margréti Blöndal þar sem hún óskar eftir undanþágu frá félagaskiptareglum.
Saga er uppalin hjá SA en lék síðan með SR á meðan á námi stóð tímabilin 23/24 og 24/25, vorið 2025 flutti hún búferlum frá Reykjavík til Akureyrar án þess að gengið væri frá félagaskiptum frá SR til SA. Þá um haustið fór Saga síðan með alþjóðlegum félagaskiptum (ITC) til Björklöven í Svíþjóð og er þar enn.
Stjórn ÍHÍ fór ítarlega yfir beiðnina og þær reglur sem gilda og hvernig þessar reglur hafa verið túlkaðar. Ljóst er að 13. grein reglugerðarinnar er skrifuð til þess að einfalda þeim sem vilja reyna fyrir sér erlendis að koma til baka ef mál þróast þannig. Ásamt því eru mörg fordæmi eru fyrir því að stjórn ÍHÍ veiti undanþágur á félagaskiptareglum vegna búferlaflutninga. Saga Margrét er að spila sitt annað tímabil með Björklöven í Svíþjóð og vill geta komið til baka í sitt heimafélag þegar hún ákveður að komið sé gott.
Byggt á framansögðu samþykkti stjórn ÍHÍ því samhljóða að veita Sögu Margréti Blöndal undanþágu með þeim hætti að Saga og hennar heimafélag SA sækja um félagaskipti samkvæmt 3. grein reglugerðar númer 9. hefðbundin afgreiðsla verður á beiðninni og þegar hún verður síðan afgreidd verður hún dagsett 30. júní 2025.
Það þýðir að þegar Saga Margrét Blöndal ákveður að binda enda á feril sinn í Svíþjóð getur hún haft alþjóðleg félagaskipti til baka í SA.