Stelpuhokkí í Laugardalnum

Nú eru Skautafélag Reykjavíkur aldeilis að bretta upp ermarnar varðandi hokkí kvenna og er það hið besta mál. Á heimasíðu þeirra SR-inga má sjá frétt þar sem auglýst er æfing en síðustu vikurnar hefur verið að myndast hópur sem æfir. Mikil nauðsyn er að fá inn þriðja liðið í kvennahokkíinu svo það nái að þróast og dafna og ef þú lesandi góður veist um stelpu/konu sem gæti komið til greina þá endilega bentu henni á þessa frétt.

HH