Stelpu hokkídagur!

Stelpur á ÖLLUM aldri eru velkomnar á STELPU HOKKÍDAGINN sem haldinn verður í Egilshöll frá klukkan 13:00-15:00 laugardaginn 18. desember.
 
Kylfur, hjálmar og skautar verða á staðnum. Eina sem þú þarft að gera er að koma, draga allar vinkonur þínar með þér og hafa gaman.
 
Landsliðsþjálfari Íslands í íshokkí, Sarah Smiley verður á staðnum ásamt leikmönnum íslenska landsliðsins.
 
Hvetjum stelpur á ÖLLUM aldri til að koma og prufa svölustu íþrótt í heimi.