Staðfest félagaskipti og skráningar á leikmönnum

Eftirtalin félagaskipti og skráningar leikmanna hafa verið staðfest.

Emil Axel Alengaard hefur gengið í raðir Skautafélags Akureyrar frá Fjölni og SA ókað eftir félagaskiptum.  Fjölnir hefur staðfest skuldleysi leikmannsins og óskar honum góðs gengis á nýjum vettvangi. Emil telst því löglegur leikmaður SA frá deginum í dag að telja. 

Skautafélag Reykjavíkur hefur óskað eftir leikleyfi fyrir eftirtalda erlenda leikmenn.
Eduard Kascak og Rihards Verdins
Báðir þessir leikmenn komu til Íslands á ótímabundnum félagaskiptum til SR. Greitt hefur verið skráningargjald fyrir þá samkvæmt reglugerð um erlenda leikmenn með ótímabundin félagaskipti til Íslands. ÍHÍ hefur ekki athugasemdir við skráninguna.
Báðir hafa þeir því fengið leikleyfi með Skautafélagi Reykjvíkur frá deginum í dag að telja.