SR - SA úrslit

Þriðji leikur úrslitakeppni íslandsmótsins fór fram í Skautahöllinni í Laugardal í dag. Þar léku SR og SA og lyktaði leiknum með sigri Skautafélags Reykjavíkur sem skoraði sex mörk gegn einu marki Skautafélagsmanna frá Akureyri. Lotur fóru 1-0, 2-1, 3-0. Leikurinn eins og flestir vita var sendur út í beinni útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu og mátti sjá mörg skemmtileg tilþrif. Sérstaklega var þó fyrsta mark leiksins og SR-inga skemmtilegt en þar komst Egill Þormóðsson einn inn fyrir vörn norðanmanna og þrátt fyrir að vera tekinn niður tókst honum að skora mark liggjandi á maganum. Þeir sem náðu ekki að taka leikinn upp geta horft á hann á netinu næstu 10 daga eða svo en slóðin á hann er hér

Mörk/stoðsendingar SR:

Egill Þormóðsson 3/1
Daniel Kolar 1/0
Gauti Þormóðsson 1/2
Martin Soucek 0/2
Mörk/stoðsendingar SA:
Jakub Koci 1/0
Sigurður Sigurðsson 0/1
Ingvar Þór Jónsson 0/1.  
HH