SR - Björninn

SR sigraði í gærkvöld Björninn með 7 mörkum gegn 4 í leik sem fór fram á svellinu í Laugardal í gærkvöld. Til að byrja með var jafnræði með liðunum og náðu Bjarnarmenn að verjast power play SR-inga mjög vel. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 2 - 1 (9 - 11) SR-ingum í vil en innan sviga má sjá skot á mark. Í öðrum leikhluta komust Bjarnarmenn yfir í eina skiptið í leiknum, 3 - 4 en á tuttugu sekúndum náðu SR-ingar að svara í fimm á þrjá power play og fór því leikhlutinn 3 - 3 (14 - 13) Síðasta leikhlutann unnu svo SR-ingar 2 -0 (15 - 10) og því leikinn 7 - 4 einsog áður sagði.

Mörk/stoðsendingar SR:
Petr Krivanek 3/2
Daniel Kolar 1/3
Gauti Þormóðsson 1/2
Mirek Krivanek 1/2
Helgi Páll Þórisson 1
Brottvísanir: 45 mín.

Mörk/stoðsendingar Björninn:
Hjörtur Geir Björnsson 2/0
Marcin Diacow 1/0
Hrólfur M Gíslasson 1/0
Birgir J. Hansen 0/2
Daði Ö. Heimisson 0/1
Sergei Zak 0/1
Matthías S Sigurðsson 0/1
Brottvísanir: 38 mín


HH