Spurningar og svör um dómgæslu

Mikið hefur verið rætt um dómgæslu og túlkanir á dómum síðustu vikur. Margir hafa hringt í undirritaðan og óskað skýringa á ýmsu sem að hefur komið upp í okkar hokkí heimi. Oft hafa margir aðilar verið með samskonar spurningar. Hér til hliðar er komin síða þar sem reynt verður að varpa ljósi á þessar spurningar, ekki verður tekin afstaða í einstökum deilumálum að með eða móti afstaða með mismunandi sjónarmiðum. Heldur reynt að varpa ljósi á það hvað reglubókin og Case book segja.

Fyrirspurnir er hægt að senda á vidar@spark.is eingöngu verður svarað fyrirspurnum sem berast undir nafni.

Vonandi líkar ykkur vel.

Viðar Garðarsson