Skautaskólar

Eins og við greindum frá hérna fyrir helgi eru skautaskólar komnir í fullan gang. Þegar labbað var við í Laugardalnum nú í hádeginu var verið að undirbúa matartímann og hafði Tómas Tjörvi tekið að sér að grill. Ágætis aðsókn er að báðum skólum og enginn vafi að þetta er góð viðbót við hokkíið hérna á Íslandi. Áætlað er að mótaskrá verði send út í vikunni og þá fer að verða ljóst hvernig veturinn verður lagður upp.

HH