Sigur gegn N-Kóreu

Íslenska karlalandsliðið var rétt í þessu að vinna glæsilegan baráttusigur gegn N-Kóreu með þremur mörkum gegn tveimur.  Líkt og í síðasta leik fór liðið ekki nógu vel af stað og komust Kóreumenn í 2 - 0 áður en okkar menn rönkuðu við sér.  Staðan eftir 1. lotu var 2 - 1 en Ísland vann 2. og 3. lotu 1 - 0 og 1 - 0, lokastaðan 3 - 2.
 
Mörkin skoruðu Úlfar Andrésson 1 og Daniel Eriksson 2.  Fleiri upplýsingar verða settar á vefinn þegar þær berast.  ÁFRAM ÍSLAND!!!