Samþykkt erlend félagaskipti Aðalheiður Anna

Eftirtalin erlend félagaskipti hafa gengið í gegn síðustu sólahringa.

Frá Sundsvall í Svíþjóð kemur.
Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir til Skautafélags Akureyrar, félagaskipti hennar hafa verið samþykkt bæði af IIHF og Sænska sambandinu. 

Aðalheiður Anna telst því löglegur leikmaður  í Topp deild kvenna keppnistímabilið 2026/2027 frá deginum í dag að telja.