SA-Valkyrjur lögðu SA-Ynjur að velli 6 - 3

Í kvöld áttust við á Akureyri SA-Ynjur og SA-Valkyrjur og lauk leiknum með sigri Valkyrja 6 – 3.  Leikurinn var engu að síður mjög jafn alveg fram undir lok leiksins þegar Valkyrjur skoruðu þrjú mörk á skömmum tíma og gerðu út um leikinn.
 
 
Mörk og stoðsendingar
SA-Valkyrjur:  Birna Baldursdóttir 3/0, Guðrún Blöndal 1/1, Hrönn Kristjánsdóttir 0/2, Sarah Smiley 1/0, Anna Sonja Ágústsdóttir 1/0, Linda Sveinsdóttir 0/1.
 
SA-Ynjur:  Kristín Jónsdóttir 1/1, Þorbjörg Geirsdóttir 1/0, Telma Guðmundsdóttir 1/0, Díana Björgvinsdóttir 0/1.
 
Brottvísanir
SA-Valkyrjur 8 mínútur
SA-Ynjur 4 mínútur.
 
Aðaldómari leiksins var Orri Sigmarsson.
 
Á meðfylgjandi mynd frá Sigurgeiri Haraldssyni er Birna Baldursdóttir, en hún skoraði þrjú mörk fyrir SA-Valkyjur í kvöld.