SA-Narfi í kvöld

Í kvöld mætast á Akureyri Skautafélag Akureyrar og Narfi frá Hrísey.  Leikurinn hefst kl. 21:00 og er síðasta viðureign þessara liða á þessu tímabili.  Narfi hefur ekki enn unnið leik í vetur  en SA hefur aðeins tapað tveimur leikjum og því má gera því skóna hver úrslitin verða.  Engu að síður er alltaf gaman þegar menn koma saman og spila hokkí og kvöldið í kvöld verður engin undantekning.