SA Ásynjur - Björninn 1. leikur


Frá leik liðanna fyrr í vetur                                                                                          Mynd: Elvar Freyr Pálsson

Á morgun þriðjudag hefst úrslitakeppnin í meistaraflokki kvenna en þá leika SA Ásynjur og Björninn sinn fyrsta leik og fer hann fram í Skautahöllinni á Akureyri og hefst klukkan 19.30.

Rétt einsog í karlaflokki, verður það lið sem fyrr er til að vinna þrjá leiki, íslandsmeistari. Þessi sömu lið léku til úrslita á síðasta keppnistímabili og þá unnu norðanstúlkur 3 – 0. SA-Ásynjur unnu íslandsmótið nokkuð örugglega þetta árið en þær unnu tíu leiki, töpuðu einum og gerðu eitt jafntefli. Bjarnarstúlkur bættu hinsvegar töluvert í þegar leið á tímabilið enda hópurinn þeirra að verða sífellt stærri.

Eitthvað er um meiðsli í báðum liðum en Bergþóra H. Bergþórsdóttir hefur verið meidd hjá Ásynjum og hjá Birninum er Hanna Rut Heimisdóttir tæp.