Nýtt félag tilkynnir inn lið í meistaraflokki karla

ÍHÍ barst nú skömmu fyrir helgi bréf undirritað af Þresti Jóhannssyni formanni Íþróttafélagsins Narfa í Hrisey, þar sem Narfi tilkynnir inn lið til keppni á Íslandsmóti í meistaraflokki karla á komandi tímabili.

Eins og fram kemur í bréfi þessu þá hefur félagið þegar stofnað sérstaka nefnd til þess að halda utan um Íshokkí lið félagsins. Frekari upplýsingar um Narfa og lið þeirra verða settar inn hér um leið og þær berast ÍHÍ með formlegum hætti.