Nýr yfirdómari

Stjórn ÍHÍ hefur samþykkt að Ólafur Ragnar Ósvaldsson verði nýr yfirdómari Íshokkísambands Íslands. Hlutverk yfirdómara (Referee in Chief - RIC) er skilgreint í reglugerð númer 20 og því ekki ástæða til að fara nánar í það hér. Ólafur Ragnar tekur við af Jóni Heiðari Rúnarssyni sem gegndi starfinu á síðasta tímabili.

HH