Nýr starfsmaður á skrifstofu

Íshokkísambandið gékk frá í vikunni samkomulagi við Dominiqu Ölmu Belanyi fyrrum afrekskonu úr fimleikum í tímabundið hlutastarf á skrifstofunni í Laugardalnum. Dominiqua er ekki alveg ókunn skautaíþróttum en hún lummar á íslandsmeistaratitil í listhlaupi frá því að hún var 10 ára gömul. Dominiqua var afrekskona í áhaldafimleikum árum saman en síðustu árin hefur verið íþróttastjóri fyrir fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði. Dominiqua verður mest í utanumhaldi og skipulagi fyrir HM U18 kvenna á Akureyri einnig mun hún koma að stefnuvinnu fyrir þjálfaramenntun sem er í vinnslu hjá sambandinu ásamt ýmsu öðru tilfallandi. 

Netfang Dominiqu er dab@ihi.is