Nýr landsliðsþjálfari

Stjórn Íshokkísambands Íslands ákvað á fundi sínum í gær að ráða Magnus Blårand sem næst yfirþjálfara landsliða Íslands í íshokkí.

Magnus tekur við starfinu af Tim Brithén en Tim gekk fyrir stuttu til liðs við þjálfarateymi HV71 sem spilar í efstu deild í Svíþjóð. 

Magnus, sem er 39 ára gamall, hefur starfað við þjálfun í Svíþjóð undanfarin rúmlega tíu ár og þá mest hjá Nypöking en einnig Vita Hastein og  Djurgarden. 

Stjórn og landsliðsnefnd ÍHÍ vill með ráðningu halda áfram því starfi sem hófst með ráðningu Tim Brithén's en Magnus mun fljótlega koma til landsins til að skoða leikmenn og funda varðandi næstu skref..

HH