Ný stjórn ÍHÍ kosin á íshokkíþingi

Íshokkíþing 2023 var haldið síðastliðinn laugardal, 13. maí, í Pakkhúsinu á Akureyri.  Alls voru mættir 19 þingfulltrúar frá aðildarfélögum ÍHÍ ásamt gestum innan hreyfingarinnar og víðar.  Dagskrá þingsins var samkvæmt lögum ÍHÍ og því nokkuð hefðbundin.  Góðar umræður voru um laga- og reglugerðarbreytingar og önnur störf ÍHÍ síðustu árin. 
 

Ólöf BjörkSigurðardóttir sæmd gullmerki ÍSÍ

Ólöf Björk Sigurðardóttir fékk afhent gullmerki ÍSÍ fyrir sjálfboðaliðastörf í íþróttahreyfingunni en hún er nú að hefja sitt tuttugasta tímabil sem formaður íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar. 

Ný stjórn kosin

Ný stjórn var kosin en þar var Helgi Páll Þórisson kosin formaður og Guðlaug Þorsteinsdóttir, Bergur Jónsson, Hilmar Freyr Leifsson og Olgeir Olgeirsson kosin meðstjórnendur. Ingóflur Elíasson, Sigrún Agatha Árnadóttir og Arnar Þór Sveinsson kosin í varastjórn. 

Heiðursstúka og heiðursmerki ÍHÍ

Fyrstu meðlimir Heiðursstúku ÍHÍ

Afar ánægulegt var að reglugerð um Heiðursmerkjanefnd og Heiðursstúku ÍHÍ var samþykkt og fyrstu meðlimir hennar kynnti inn.  En fyrstu meðlimir Heiðursstúku ÍHÍ eru þeir Magnús Einar Finnsson, Sveinn Kristdórsson og Jan Stolpe.  Heiðursstúku ÍHÍ verður gerð góð skil hér á vef ÍHÍ innan skamms.  Rétt fyrir þingslit bar nýendurkjörinn formaður ÍHÍ upp tillögu um kosningu Heiðursformanns ÍHÍ og stakk upp á Viðari Garðarssyni sem samþykkt var af öllum viðstöddum þingfulltrúum.
Helgi Páll Þórisson, endurkjörinn formaður ÍHÍ, og Viðar Garðarsson, nýkjörinn heiðursformaður ÍHÍ