Ný myndasyrpa

Helgi Páll Þórisson hefur nú sett saman nýja myndasyrpu sem að rúllar hér á forsíðunni. Þetta eru allt myndir frá Heimsmeistaramótinu 3 deild sem leikið var í Skautahöllinni í Laugardal í vor. Reynt var að velja myndir sem að sýna hraðann, kraftinn, átökin og snerpuna sem einkennir íþróttina okkar.
Myndirnar tóku Kristján Maack ljósmyndari og Margeir Örn Óskarsson fyrir ÍHÍ á meðan á mótinu stóð