Niðurstöður úr lyfjaeftirliti í íshokkí

Lyfjaeftirlitið mætti á íshokkíleik Bjarnarins og SR í Egilshöll þann 8. nóvember og tók þar nokkur próf.  Þeir sem skiluðu sýni voru; Jón Trausti Guðmundsson, Árni Valdi Bernhöft og Sindri Már Björnsson úr SR og Guðmundur Borgar Ingólfsson, Magnús Felix Tryggvason, Mattias Nordin og Brynjar Freyr Þórðarson úr Birninum.
Niðurstöður liggja nú fyrir og fundust engin lyf af bannlista í sýnunum.