Námskeið

Einsog fram kom í frétt hér fyrir stuttu verður haldið dómaranámskeið hér í Reykjavík um komandi helgi. Enn er hægt að skrá sig á ihi@ihi.is

Helgina á eftir verður síðan haldið svokallað LTP-námskeið en LTP stendur fyrir Learn To Play. Félögin munu tilnefna sína fulltrúa á það námskeið en öllum áhugasömum er þó heimil þátttaka.

Dagskráin er eftirfarandi:

Fös 18:30 – 22: 30 Fyrirlestur.
Lau 09:30 – 10:30 Ísæfing.
Lau 14:00 – 17:30 Fyrirlestur.
Sun 09:30 – 10.30 Ísæfing.
Sun 12:00 – 14:00 Fyrirlestur (ef með þarf).

Haldnar verða sameiginlegar ísæfingar hjá félögunum hér í Reykjavík í barnaflokkum sem telst verklegi hluti námskeiðsins. Námsefnið sem notað er á námskeiðinu má finna hér.

HH