Næstu leikir

Í kvöld kl. 19:30 mætast í Egilshöllinni Björninn og Skautafélag Reykjavíkur.  Viðureignir liðanna hafa hingað til verið fjörugar og því má búast við hörkuleik í kvöld.
Um helgina, nánar til tekið á laugardag, verða síðan tveir leikir á Akureyri en þá tekur SA á móti SR kl. 17:00 og Narfi tekur á móti Birninum kl. 20:00.