Næsti leikur, SR - Narfi á miðvikudag

Á morgun miðvikudag fer fram næsti leikur í Íslandsmótinu þegar Skautafélag Reykjavíkur tekur á móti Narfa frá Hrísey í Laugadalnum kl. 20:30.  Narfi hefur ekki farið vel af stað í mótinu, eftir að hafa tapað stórt í fyrsta leik gegn Birninum og gefið næstu tvo leiki á móti Skautafélagi Akureyrar.  Þeir munu því væntanlega ætla sína hvað í þeim býr og taka hressilega á SR á miðvikudaginn.
 
Narfi er sýnd veiði en ekki gefin og leikmenn liðsins búa yfir mikilli reynslu sem getur skipt sköpum þegar á ísinn er komið.  Vonandi mætir Narfi með sitt sterkasta lið því þá eru allar líkur á skemmtilegum leik.