Meistaraflokkur karla Björninn - SR í Egilshöll á þriðjudagskvöld

Næstkomandi þriðjudagskvöld verður stórviðureign Reykjavíkur félaganna í Egilshöll. Bæði lið unnu sína síðustu leiki stórt og ætla sér eflaust sigur í þessum leik. Leikir félaganna eru sannkallaðir Derby leikir þar sem ekkert er gefið eftir, og hart er tekist á. Víst er að leikurinn í Egilshöll verður hin besta skemmtun og því er rétt að benda hokkíáhugafólki á að taka þriðjudagskvöldið frá.