Margeir myndasmiður

Margeir Örn Óskarsson áhugaljósmyndari hefur verið duglegur að mæta á hokkíleiki í gegnum tíðina og oftar en ekki með myndavélina með í för.  Hann er orðinn býsna lunkinn við að ná réttu augnablikunum og nú líkt og í fyrra birtir hann myndir frá leikjunum á www.narfi.is   Þar eru nú komnar inn fjölmargar myndir frá þessu tímabili og um að gera fyrir fólk að kíkja virkilega flottar hokkímyndir.