Lög og reglugerðir

Á Íshokkíþingi sem haldið var í maí síðast liðnum voru lagðar fram breytingar á lögum ÍHÍ en einnig á ýmsum reglugerðum er varða starf sambandsins Breytingarnar voru allar samþykktar en í flestum tilvikum var um að ræða lítilsháttar breytingar. Þær fólust í að gera lögin og reglugerðarnar auðlesan- og skiljanlegri. Nýjustu lög og reglugerðir má alltaf finna hér vinstra meginn á síðunni undir Lög og reglugerðir.

Eftirfarandi reglugerðum var breytt:

Reglugerð nr. 7 um Mótanefnd
Reglugerð nr. 9 um Dómaranefnd
Reglugerð nr. 13 um Framkvæmd móta
Reglugerð nr. 14 um Íslandsmótið í íshokkí
Reglugerð nr. 18 um Þátttökugjad í Íslandsmóti


HH