Ljósmyndir af leikjum



Úr leik Ynja og Ásynja sl. þriðjudag.                                                                 Mynd: Elvar Freyr Pálsson

Eins og lesendur vefsins hafa vonandi tekið eftir hafa orðið breytingar þegar kemur að birtinu ljósmynda á nýjum vef okkar. Eldri vefur gaf ekki mikla möguleika hvað varðaði stærð á ljósmyndum og birtingu þeirra.

Nú þegar sá möguleiki er fyrir hendi er að sjálfsögðu skemmtilegra að geta birt nýlegar myndir Nýir leikmenn koma til liðanna, liðin fá sér nýja búninga og svo framvegis. Norðanmenn hafa verið svo lánsamir að hafa hóp áhugaljósmyndara sem við höfum getað fengið myndir hjá en minna er um það hér sunnan heiða. Við hvetjum því alla sem hafa áhuga á að senda okkur myndir, sem nýta má, að hafa samband á ihi@ihi.is

HH