Litháen - Ísland 5 - 2 (1-1)(3-0)(1-1)

Gullið er gengið okkur úr greipum. Leik Litháen og Íslands er lokið með sigri Litháen 5 - 2. Slæmur kafli í öðrum leikhluta var til þess að leikurinn tapaðist en fyrsti og þriðji hluti voru mjög jafnir. Ástæða er til þess að óska drengjunum til hamingju með árangurinn og minna á að þrátt fyrir að Gullið næðist ekki náði liðið markmiði sínu að ganga upp um deild og því leikur það í annarri deild að ári.

TIL HAMINGJU STRÁKAR MEÐ GÓÐAN ÁRNANGUR

Meira verður ritað um leikinn og talnagögn úr honum síðar í kvöld þegar fréttir berast.