Línudómaranámskeið

Fimmtudaginn 16 október stendur til að halda línudómaranámskeið á vegum dómaranefndar ÍHÍ. Námskeiðið verður haldið í Egilshöll en nákvæm tímasetning verður auglýst þegar nær dregur. Ástæða er til þess að hvetja menn til að skrá sig á ihi@ihi.is en námskeiðið tekur einungis kvöldstund. Námskeiðinu verður skipt í þrjá hluta, þ.e. farið er yfir glærur um helstu reglur og skyldur línudómara. Þessu næst verður farið á ís og rúllað yfir efnið verklega og að lokum verður lagt fram próf. Við hvetjum alla áhugasama að skrá sig því án dómara verður engin íþrótt.

HH