Leikur kvöldsins.

Í kvöld er tilvalið að létta af sér jólastressinu og skella sér á leik í Egilshöllinni. Klukkan 18.30 síðdegis hefst leikur Bjarnarins og Skautafélags Reykjavíkur í meistaraflokki karla.

Sumir leikmenn sem taka þátt í leiknum í kvöld ættu í það minnsta að vera í góðri leikæfingu eftir að hafa leikið fimm leiki á stuttum tíma með U20 landsliðinu í Tallinn í Eistlandi.

Aðrir leikmenn hafa verið öllu lengur í fríi og eru því örugglega spenntir fyrir að fara á ísinn í kvöld.

HH