Leikur kvöldsins.

Einn leikur er á dagskrá íslandsmótsins í íshokkí í kvöld og fer hann fram í Egilshöll og hefst klukkan 19.30. Það eru Húnarnir og Björninn sem mætast í meistaraflokki karla. 

Liðin hafa leikið tvö leiki í vetur og hafði Björninn sigur í báðum leikjum en Húnar mættu með nokkuð vel skipað lið í síðasta leik gegn Birninum en allt kom fyrir ekki því Bjarnarliðið vann á þeim 10 marka sigur. Húnar kræktu sér hinsvegar í sín fyrstu stig um liðna helgi með sigri á Jötnum sem sjálfsagt gefur þeim byr undir báða vængi.

HH