Leikur kvöldsins


Úr spennandi leik liðanna fyrr á tímabilinu                                                            Mynd: Elvar Freyr Pálsson


Leikur kvöldsins að þessu sinni er leiku Ásynja og Ynja og fer hann fram á Akureyri og hefst klukkan 20.30.

Síðast þegar liðin léku var hart barist en fimm mínútum fyrir leikslok var staðan  5 - 5. Leiknum lauk svo með sigri Ásynja sem gerðu sjö mörk gegn sex mörkum Ynja. Norðankonur eru þessa dagana áberandi sterkastar á svellinu en Ásynjur hafa unnið alla sína leiki hingað til og eini leikurinn sem Ynjur hafa tapað er fyrrnefndur leikur gegn Ásynjum. Önnur lið vita því hvað þarf til og nálgast vonandi norðankonur með tíð og tíma. 

Það ætti því að vera hægt að lofa spennandi leik í kvöld og um að gera að skella sér í höllina.

HH