Leikur kvöldsins

Í kvöld klukkan 19.00 fer fram í Skautahöllinni á Akureyri þriðji leikur SA Víkinga og Skautafélags Reykjavíkur í úrslitum um íslandsmeistaratitilinn í íshokkí karla. Staðan í einvíginu er 2 - 0 SR-ingum í vil og með sigri í kvöld geta þeir tryggt sér íslandsmeistaratitilinn. Víkingar eru á hinn bóginn komnir með bakið upp að battanum og enginn vafi á að liðið mun taka á öllu sínu í leiknum í kvöld rétt einsog andstæðingarnir. Úthald og form fer að skipta meira máli með hverjum deginum enda liðin að leika þriðja leik sinn á fimm dögum.

Ástæða er til að hvetja alla sem vettlingi geta valdið til að láta sjá sig í höllinni því að áhorfendur geta átt von á hörku leik þar sem allt verður lagt undir.

Þeir sem ekki eiga heimangegnt eiga síðan möguleika á að horfa á leikinn á N4 en sú útsending er bæði í sjónvarpi og á netinu.

Mynd: Sigurgeir Haraldsson

HH