Leikur kvöldsins

Leikur kvöldsins er leikur Skautafélags Reykjavíkur og SA Jötna og fer hann fram í Skautahöllinni í Laugardal og hefst klukkan 20.15

SR-ingar léku síðast milli jóla og nýárs gegn Birninum og þeim því sjálfsagt farið að klægja í að komast á ísinn og taka leik. Einhver smávægileg meiðsli hafa verið hjá SR-ingum en þó er vonast til að þeir geti stillt upp sínu sterkasta liði í kvöld. Gengi Jötna hefur verið misjafnt en þeir hafa á góðum degi náð að stríða öðrum liðum. Jötnar munu að öllum líkindum mæta með fullskipað lið í kvöld þó ekki liggi fyrir hverjir skiptimenn liðsins úr SA Víkingum verða.

Myndina tók Sigurgeir Haraldsson

HH