Leikur kvöldsins

Leikur kvöldsins er að þessu sinni leikur Jötna og Skautafélags Reykjavíkur og fer hann fram í Skautahöllinni á Akureyri og hefst klukkan 19.30. Liðin hafa ekki leikið áður á tímabilinu.

Jötnar hafa á tímabilinu leikið þrjá leiki og hafa að þeim loknum 3 stig. Stigin fengu Jötnar í leik gegn Húnum. Norðanmönnum mun í kvöld bætast liðstyrkur en Stefán Hrafnsson er mættur á ísinn aftur en hann hefur ekki átt heimangegnt í leiki norðanmanna hingað til.

SR-ingar hafa unnið alla þrjá leiki sína hingað til og eru því með fullt hús stiga. Þeir munu mæta með sterkt lið norður yfir heiðar og ætla sér að halda sigurgöngunni áfram. Hjá SR-ingum var Ævar Þór Björnsson  veikur af flensu í síðasta leik en er nú orðinn heill heilsu.

HH