Leikur kvöldsins

Í kvöld leika í Laugardalnum lið Skautafélags Reykjavíkur og Bjarnarins. Leikurinn hefst klukkan 20.00. Staða Bjarnarins er erfið enda liðið einungis unnið einn leik. Þeir hafa hinsvegar heiðurinn að verja auk þess sem hver leikur fer í reynslubankann hjá ungum leikmönnum liðsins. SR-ingar hafa hinsvegar verið á ágætis skriði í síðustu leikjum. Nú þegar SA-menn narta orðið í hælana á SR-ingum á stigatöflunni munu þeir að sjálfsögðu leika á fullu og ekkert gefa eftir. Arnþór Bjarnason er enn meiddu og Óskar Grönholm tekur út leikbann hjá SR-ingum. Ekki hefur heyrt af neinum meiðslum hjá Bjarnarmönnum og því geta þeir að öllum líkindum still upp sínu sterkasta liði. Leikir þessara liða hafa oft verið hraðir og skemmtilegir og ekki ástæða til að ætla en að svo verði einnig í kvöld.

Myndina tók Ómar Þór Edvardsson

HH