Leikur kvöldsins

Landsliðsæfingar áttu hug hokkímanna og kvenna um síðustu helgi en fyrir þá sem vilja sjá léttan og lipran leik þá leika Björninn og Skautafélag Reykjavíkur í 2. flokki í Egilshöllinni í kvöld klukkan 19.00. SR-ingar hafa verið ansi sterkir í þessum flokki þetta árið og því keppikefli hinna liðanna að leggja þá af velli.

Myndina tók Ómar Þór Edvardsson

HH