Leikur kvöldsins

Það er kanski ekki margt sem léttir lundina þessa dagana hér á Fróni en í kvöld má þó gera sér glaðan dag með því að skella sér á hokkíleik. Það eru Björninn og Skautafélag Reykjavíkur sem leika í Egilshöll og hefst leikurinn klukkan 19.30. Eitthvað hefur heyrst af minniháttar meiðslum í báðum liðum en ekki er neitt staðfest í þeim efnum. Það verður sjálfsagt heitt kakó og kaffi á könnunni og því um að gera að skella sér og horfa á skemmtilegt hokkí.

Myndina tók Jakob Fannar Sigurðsson

HH