Leikur kvöldsins - 2. flokkur.

Í kvöld mætast SR og Björninn í öðrum flokki karla. Leikurinn fer fram í Laugardal og hefst klukkan 19.45. SR-ingum hefur ekki gengið sem skildi í þessum flokk og munu því leggja sig alla fram um að landa sigri í kvöld. Bjarnarmenn hafa hinsvegar mjög góðan mannskap í þessum flokk og hafa verið að sýna klærnar í leikjunum hingað til. Síðasti leikur þessara liða þótti hin besta skemmtun og því hægt að lofa góðum leik í kvöld. Ég allavega mæti.

HH