Leikur kvöldsins

Leikur kvöldsins er leikur Skautafélags Reykjavíkur og Húna í meistaraflokki karla og fer hann fram í Skautahöllinni í Laugardal og hefst klukkan 20.15

Sömu lið áttust við áttust við um miðjan september í Egilshöll og þá unnu SR-ingar öruggan  3 - 10 sigur. Einsog kom fram hérna á síðunni sóttu Bjarnarmenn um leikheimild fyrir tvo leikmenn, þá Richard Tahtinen og Sigurð Óla Árnaso sem gætu orðið á liðslista Húna í kvöld. Í kvöld mun einnig Robbie Sigurdsson leika sinn fyrsta leik hérna sunnan heiða og gefst því mönnum færi á að sjá hvað í honum býr.

Það er því góð ástæða til að mæta í Laugardalinn í kvöld og hvetja sitt lið.

HH