Leikur kvöldsins

Í kvöld er það lið Narfanna sem tekur á móti liði SR-inga í Laugardalnum í meistaraflokki karla og hefst leikurinn klukkan 20.30. Eins og taflan gefur til kynna ætti að vera um auðveldan leik fyrir þá SR-menn að ræða enda hafa SR-ingar síðustu vikur verið að fara mikinn bæði með öruggum sigri á Bjarnamönnum nýlega. Ekki síður hefur 2. flokkur þeirra náð sér á flug eftir dapra byrjun. Narfamenn mæta hinsvegar með bjartsýnina að vopni í hvern leik en það hefur sýnt sig að hún ein dugir ekki til að landa sigri.

HH