Leikur kvöldsins

Leikur kvöldsins er leikur Skautafélags Reykjavíkur gegn Birninum. Leikur fer fram í skautahöllinni í Laugardalnum og hefst klukkan 20.30. SR-ingar hafa verið að styrkja sitt lið frá því í Aseta-mótinu og einsog sjá mátti í frétt hér í gær þá eru Daniel Kolar og Arnþór Bjarnason komnir með leikheimild. Einnig heyrðist að Þorsteinn Björnsson væri mættur aftur, ferskur eftir ferð til Íslendinganýlendunnar Danmerkur. Bjarnamenn hafa hinsvegar ekki bætt við sig í mannskap þótt ýmsar sögur séu í gangi. Það er hægt að lofa spennandi leik í kvöld og eru íshokkíáhugamenn hvattir til að mæta og hvetja lið sitt á jákvæðan hátt.

Myndina tók Ólafur Ragnar Ósvaldsson

HH