Leikur kvöldsins

Í kvöld klukkan 20.00 leiða saman hesta sína lið Bjarnarins og Skautafélags Reykjavíkur í öðrum flokki karla. Bjarnarmenn máttu lúta í ís fyrir norðanmönnum um síðustu helgi og vilja því örugglega krækja sér í þau þrjú stig sem eru í boði. SR-ingar aftur á móti þurfa að fara að girða sig í brók ef þeir ætla eitthvað að vera með þetta árið. Leikurinn hefst einsog áður segir klukkan 20.00 og einsog dagskráin er í sjónvarpinu í kvöld er engin ástæða til annars en að mæta og sjá skemmtilegan íshokkíleik.

HH