Leikur kvöldsins

Í kvöld leiða saman hesta sína SR og Björninn í meistaraflokki karla. Leikurinn fer fram í Laugardal og hefst klukkan 20:30. Björninn vann fyrsta leik liðanna í byrjun móts en SR-ingar tvo þá næstu. Einhver meiðsli hafa verið að hrjá Bjarnarmenn en vonandi ná þeir að stilla upp sínu sterkasta liði í kvöld. Bjarnarmenn munu sjálfsagt gera sitt ítrasta til að halda sér frá refsiboxinu þar sem power play lína SR-inganna er mjög öflug. SR-ingar vilja að sjálfsögðu halda toppsætinu í deildinni en heyrst hefur að einhverjar breytingar hafi verið í gangi hjá þeim á æfingum. Sjáumst í Laugardalnum í kvöld stundvíslega klukkan 20.30 og hvetjum okkar lið til sigurs.

HH