Leikur kvöldsins

Úr myndasafni
Úr myndasafni



Leikur kvöldsins að þessu sinni er leikur Bjarnarins og Skautafélags Reykjavíkur í meistaraflokki karla. Leikurinn fer fram í Egilshöll og hefst klukkan 19.30.

Bjarnarmenn hafa í undanförnum tveimur leikjum haft töluverða yfirburði á SR-inga og spurning hvort svo verður áfram í kvöld. Allir leikmenn Bjarnarins eru heilir, bræðurnir Ólafur Hrafn- og Hjörtur Geir Björnssynir verða þó ekki með þar sem þeir eru staddir erlendis. Hjá SR-ingum er Jón Andri Óskarsson meiddur ásamt Agli Orra Friðrikssyni en aðrir leikmenn eru heilir. 

Mynd: Hafsteinn Snær Þorsteinsson

HH